Blað 3 bekkjar
*Heimsborgarar*
*THE OTHERS*
*Heimaslóð*
Skila lokaritger�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1760 dögum
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1720 dögum
24.10.2007 07:29:50 / Nemandi

Hittingur á morgun (Fimmtudaginn 26.okt)

Góðan daginn gott fólk

Ég mæti á klakann í kvöld og langar rosa rosa að hitta ykkur. Eggert og Hanna Guðný eru að koma suður en reyndar kemur HGG ekki fyrr en á föstudaginn. Ég verð þá farin til Eyja þannig ég, Hjördís, Skúli og Eggert ætlum að hittast á morgun kl.17.

Ef þið hafið áhuga endilega commentið hér :) Við erum nefnilega ekki alveg búin að ákveða hvar við ætlum að hittast en ég býst við að það verði á kaffihúsi niðrí bæ.

Sjáumst kannski á morgun :lol:

kv.SaraP


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 01:37:02 / Nemandi

Reunion

Jæaja elskurnar ekkert að gerast ennþá nema hvað ég og Berglind sitjum hér í RVK og sötrum á rauðu og hvítu. erum að pæla í hvenær hægt er að hittast...hvernig líst ykkur á að gera eitthvað skemmtilegt fyrstu helgina í okt?????? Ég kem norður þá og okkur Berglindi langar að sjá framan í ykkur og fá fréttir.

Getum við ekki hist uppi á Amor svona sem dæmi ??? hvernig ´líst ykkur á það??

Kossar og knús Beta og Berglind


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 22:51:18 / Nemandi

Úff sakna þess að hitta ykkur ekki í skólanum

Hello dúllur,  Ég sakna þess þvílíkt að vera ekki að fara aftur í skólann og hitta ykkur öll. En ég er nú búin að skrá mig í HR í viðskiptaensku, þetta er samningagerð og business mál :-) mjög spennó. Af mér er allt gott að frétta allt á grilljón í vinnunni en þvílíkt skemmtilegt. Ég talaði við Berglindi um daginn og hún er bara að þreifa fyrir sér á markaðinum fyrir norðan. Hún er að koma suður í kring um 20 sept og ætlar að koma til mín í rauðvín og þið eruð öll velkomin:-).

Varð bara að henda inn línu þar sem mannskapurinn á mínu reki hefur nú ekki verið mjög "aktívur" við skriftir. Ég hlakka til að heyra frá ykkur og spennandi væri að heyra frá þeim sem virðast vera týndir í kerfinu :-)

Kossar og knús

Beta 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 14:23:09 / Nemandi

smá update

Heil og sæl öll sömul....

Ég var alveg komin með nóg af fyrri færslu (ekki illa meint Hanna mín.. bara komin tími á nýja;)) þannig að ég ákvað að gerast djörf og koma með eina stutta... ég segji djörf því ég veit ekki hversu áhugaverð þessi færsla verður8|

Úr borg óttans er allt gott að frétta.. vinnan að koma ágætlega fram við mann og þessi vika búin að vera aðeins líflegri heldur en allar vikurnar hér á undan sem er MJÖG gott þar sem ég var alveg komin með nóg að því að allir væru í sumarfríi og ekkert að gera!

Það var skellt sér norður í rigninguna um versló.. þar var náttúrulega engin eins og flestir vita (en nenni ekki að tala meira um það) ég skemmti mér alveg konunglega í faðmi fjölskyldunnar og örugglega í fyrsta skiptið á ævi minni sem mig langaði að vera lengur á Akureyri... jahá! einhverntímann er allt fyrst.. (greinilegt að maður er eitthvað að þroskast:P)

Annars er nú lítið annað.. Sara er stödd á eyjunni fögru og er planið að hitta á hana á morgun.. aldrei að vita nema maður skelli sér á Gay pride eða eitthvað... Svo er víst ferðinni heitið upp í sumarbústað með vinnunni á sunnudaginn.. ætla rétt að vona að sólin skíni á okkur þá:D

Svo er haustskapið alveg að heltaka mig þessa stundina og áður en maður veit af verður líklega allt orðið á kafi í snjó og læti (samt kannski ekki í rvk)

Endilega látið svo heyra í ykkur "krakkar" mínir:P maður er forvitin að vita hvað hefur skeð í sumar og hvort að þið saknið þess ekki að vera ekki að fara í skólann í vetur:haha:

Hjördís: Skýrr
Sara: Landsbanki UK
Andrea: Flugfélagið
Hanna guðný: Svefn og heilsa
Birna: Glitnir
Tvíbbarnir: Höldur
Beta: Forval
Kristín: Íslensk Verðbréf
Lára: Seðlabankinn
Hugrún: Sjóvá (man ekki alveg:S)
Sverrir: Útlönd
Hvað eru Daði, Berglind, Systa og allir hinir að gera??? og hvert er ferðinni heitið......

ADÍÓS HJ8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 17:58:04 / Nemandi

Slæmar fréttir...!!!!

Því miður getum við ekki farið á BED næst þegar við ætlum til NYC!!!

 Þar sem að staðnum var lokað, núna um daginn!!! ástæða fyrir lokuninni er að það urðu slagsmál og var einum manni hrint niður um lyftu gatið..,.. og þá kom ve-ð eftirlit og lokaði pleisinu!!! 8|

 Ekki að ég gráti matinn þarna heldur bara stemmingin að hafa farið á þennan stað ;) +

 R.I.P.

 Þannig að við verðum bara að fara öll kvöldin  á þar flotta skemmtilega staðinn sem hét e-ð M  :haha: :haha:

 

kv.hgg


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 09:19:13 / Nemandi

London calling!

Jæja.. er ekki komin tími á smá blogg! Ég sem var búin að lofa mér því að blogga með myndum og tilheyrandi þegar ég kæmi frá Söru minni í London.. en síðan eru liðnar 2 vikur! (VÁ hvað tíminn er fljótur að líða) og ég hef ekkert bloggað!!:S

Annars er nú bara allt gott að frétta úr borginni! veðrið í sumar búið að vera frábært og mín lítur bara út fyrir að hafa verið á Mallorca eftir hverja helgi maður er svo tanaður:P

En díses hvað það væri frábært að skella sér back to London.. þetta var alveg frábær ferð í alla staði og lífsnauðsynlegt að breyta aðeins um umhverfi og slappa af:) ég fór nú ekki að sjá the sights þar sem búðirnar og chill höfðu vinninginn.. en ég á án efa eftir að skella mér aftur til UK þannig að nægur tími;) *hóst* hópferð??

Svo fréttir Jónþór eða JT aka Justin Timberlake, að skvísan væri í borginni (ég) þannig að hann ákvað að heiðra okkur með samveru sinni á föstudeginum til sunnudags!! fynnst það reyndar ekki skrítið vistað ég er ekki í bænum allar helgar:P

En ég verð að hryggja ykkur með því að ég er í vinnutölvunni og engar London myndir þar þannig að þær verða bara að koma seinna...8|

Næst á dagskrá er síðan að fara heim á hótel mömmu um versló! held að planið sé aðallega að passa að matseðill helgarinnar standist og verð ég líklega síétandi þar sem ég er ekki sú myndarlegasta í eldhúsinu hérna í borginni!!

ps. gaman væri að fá smá fréttir af fólkinu.. endilega hendið inn línu:haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 12:30:19 / Nemandi

Keane here I come

Hef svo sem ekkert mjög merkielgt að segja en leið illa í hvert skipti sem ég fór inn á þessa síðu og sá titilinn: Þið eruð ömurleg! Þannig ég ákvað að henda inn einni stuttri færslu.

 Í gær bókaði ég miða á Keane tónleika sem verða haldnir hérna í London laugardaginn 21.júlí. Þetta verður vonandi alveg geðveikt. Maður mátti ekki klikka á þessu fyrst að við komumst ekki út í New York. Vonandi að söngvarinn nái að slappa af í vínunni næstu 3 vikurnar þannig hann þurfi ekki á annari meðferð að halda ;) (ein að hugsa BARA um sjálfan sig :klikk: )

 Hjördís er að koma til London TOMORROW :haha: Það verðu geggjað að fá stelpuna í heimsókn og sýna henni "the sights"

Bið að heilsa

Sara Londonbúi


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 16:47:38 / Nemandi

Þið eruð ömurleg!!

Hvað er að frétta félagar? Commentar ENGIN á Þjóðhátíðar bloggið? 8| Ég hefði betur sleppt því að leggja inn á ykkur restina af Reka peningunum og lagt þetta bara allt inn á mig. Þá hefði ég get eytt þessu öllu á ÞJÓÐHÁTÍÐ!!!:evil:  hehe ein bitur.

En já ég var að gera upp REKA reikningin. Við erum núna búin að borga Amour og ég lagði 3000kr inn á alla (inn á þá reikninga sem ég lagði inn á seinast).

 Ekki eyða þessu öllu í einu, spara spara spara 8)

 kv.SP


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 15:01:28 / Nemandi

Þjóðhátíð 2007

Þá er það næsta mál á dagskrá: Eyjar 2007!! :lol:

 Hver ætlar að mæta? Minni New York hópurinn er búin að samþykkja þannig ég fer hreinlega að grenja ef þið beilið, sérstaklega þar sem þetta verður eina sumarfríið mitt í ár :cry: (þangað til í okt 8) ).

Hanna Guðný - ekki spurning

Hjördís - lætur sig ekki vanta á djammið

Skúli - ef Hulda segir já :haha:

Eggert - ef Skúli segir já ;)

Andrea - fær flugið nánast gefins þannig ekki hægt annað en að mæta

Birna - smeik um að þú beilir..........en það er BANNAÐ!

Við getum reddað gistingu fyrir ykkur í heimahúsi eða í garði við hús þannig þið hafið 100% aðgang að sturtu, klói os.frv!

Ég var búin að lofa ykkur að ég myndi mæta til Eyja þannig nú er pressa á ykkur að sýna að þið eruð líka sannir vinir 8|

Beta: maðurinn þinn var nú orðin ansi heitur að mæta, allavega eitt kvöld, og þá lætur þú þig að sjálfsögðu ekki vanta.

 Ekki gleyma að við komum til með að hittast mjög lítið héðan í frá og því er þetta upplagt tækifæri fyrir 3 mánaða reunion :klikk:

 kv. Londonbúinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 02:37:45 / Nemandi

Frábær dagur

jæja elskurnar ég er nú kannski ekkert bláedrú en mig langar samt að þakka fyrir frábæran dag og frábært kvöld. þið eruð öll æðilseg. takk fyrir skúli og hulda fyrir að bjóða okkur heim þetta var nátturlega bara snilld hjá ykkur. við eða ég og skúli erum búin að ákveða að það væri snilld að hittast að ári heima hjá honum o gvið bara gerum það. OMG hvað ég hlakka til að hitta ykkur öll aftur þá. ok bæ í bili
 
 
kv beta :-)

» 12 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 13:06:49 / Nemandi

Hvað er planið?

 

 

Hvað segiði elskurnar mínar hvað er planið fyrir stóra daginn okkar??? er það Amour eða???

 Og hverjir ætla að vera með?

 

kv. Hgg


» 14 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:00:36 / Nemandi

Og við sögðumst "redda essu"

Jæja girls hvað segið þið gott ? það er orðið frekar langt síðan að maður heyrði í ykkur af einhverju viti og má eila segja að maður sé strax farinn að sakna ykkar :$. En nóg um það við ætlum að taka svaðalegt djamm  9. júní enda eigum við það alveg skilið :haha: Við Skúli vorum að spá í hvort ekki væri stemming fyrir því að hittast á Amour (verðum bara með V.I.P private party) á efri hæðinni kaupum kúta og verðum með eitthvað snakk til að narta í. Svo er einn annar möguleiki í stöðunni og það er Gamli Lundur (svart timburhúns á eyrinni) sem b.t.w Bautinn ræður yfir þaðan er stutt í bæinn og við værum meira út af fyrir okkur þar heldur en á Amour en við ætlum að kanna þessa tvo staði en það gæti verið að við þyrftum að kaupa eitthvað meira en bjór til þess að fá Gamla Lund einhvern mat af Bautanum en ég kanna það verðum eflaust öll sömul mjög södd og þurfum örugglega ekki neitt mikið að borða. Spurningin er líka hvenær viljum við hittast um kvöldið ? Er ekki fínnt um hálf tíu eða eitthvað svoleiðis eða bara þegar allir eru búnir að borða með fjölskyldunni ...
En við hendum hérna inn nánari upplýsingum um þetta og hvorn staðinn við gætum fengið .
Hey do ..
Eggert :klikk:& Skúli Ey8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 20:19:08 / Nemandi

Strákarnir "redda 'essu"

Strákarnir sögðust ætla að redda sal. Við treystum þeim fullkomnlega til þess, en byðjum þá bara að henda nafninu hérna inn þegar þeir eru komnir með þetta á hreint. Síðan þarf að kaupa 1-2 kúta og kannski e-ð snakk fyrir kvöldið. Hver bíður sig fram í að redda því...e-r sem þekkir til hjá Egils eða Kók til að redda þessu á góðum kjörum ;)

 Bið að heilsa ykkur. Þið sem eigið próf/verkefni eftir gangi ykkur rosalega vel og þið sem eruð búin....farið þið bara í ras#%#" !! :haha:

 kv.SaraP (sem er búin í prófum á morgun:D )


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 14:16:00 / Nemandi

PARTY PARTY PARTY......

Hvað segið þið meðþetta PARTÝ!!! á ekkert að fara að plana þetta eða á þetta bara að enda í vaskinum eins og svo margt annað þessa dagana???

 

Hver býður sig fram við að plana þetta??????...allir þeir sem eru búnir í prófum fyrir 7 maí verða sjálfskipaðir í skemmtinefnd.... ;)

\"\"

Koma ssvo með e-ð plan... þetta gengur ekki

 

*hgg*


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 21:24:35 / Nemandi

What to do?!

Við erum búin að missa Parken 9.júní þannig við verðum að finnan annan stað til að hittast. Persónulega finnst mér nauðsynlegt að við verðum með "meeting place" fyrir kvöldið þannig að við getum nú eytt útskriftakvöldinu okkar saman áður en allir fara í sitt hvora áttina.

Þannig allar hugmyndir vel þegnar

kv.SP


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14